Selt.is - Uppboðs & Auglýsingatorg
  islenska   english  
Notendaskilmálar

Notendaskilmálar

Vefsíðan Selt.is er hönnuð til að veita vinsamlega, ánægjulega og notendavæna upplifun, en eins og með allt sem kemur að fjármálum (sölu og kaupum) fylgja alltaf ákveðnar áhættur. Við krefjumst þess að þú kynnir þér þessa notendaskilmála áður en þú skráir þig og byrjar að nota vefsíðuna. Ef þú rekur augun í uppboð sem þú heldur að brjóti í bága við þessa skilmála hér að neðan, hvetjum við þig til þess að hafa strax samband við okkur.

Greiðslur á seldum hlutum er alfarið háð samkomulagi kaupanda og seljanda og blandar selt.is sér ekkert í þau mál.
Selt.is tekur enga ábyrgð á vanefndum kaupanda eða seljanda í viðskiptum, selt.is er aðeins milliliður í að koma kaupanda og seljanda saman.


Réttur Selt.is til að stöðva eða eyða uppboðum/notendum

Þú samþykkir að Selt.is megi stöðva eða eyða tafarlaust hvaða uppboð/þjónustu sem er án tilkynningar ef (a) Starfsfólk Selt.is hefur grun um að þú farir ekki að uppboðsreglum. (b) Þú hefur orðið uppvís á að brjóta uppboðsreglur áður undir sama eða öðru notandanafni. (c) Okkur finnst þú hafa sett inn grunsamlegan hlut. (d) Ef við höldum að þú standir ekki við boð þín í uppboðum. Í flestum tilvikum gerum við reikning þinn óvirkan á meðan við rannsökum málið. Ef rannsókn okkar leiðir í ljós brot á uppboðsreglum verður reikningi þínum tafarlaust eytt. Ef alvarleiki brotsins er mikill verður hann kærður til yfirvalda.

Framferði þitt

Aðeins þú ert ábyrg(ur) fyrir framferði þínu á þessari vefsíðu. Þú verður að vera viss um að þátttaka þín í kaup og sölu sé ekki ólögleg á Íslandi, að þú sért eigandi eða hafir umboð fyrir þeim hlutum sem þú selur. Þú mátt ekki nota þjónustu Selt.is til þess að koma á framfæri stolnu, ólöglegu, dólgslegu eða meiðyrðandi efni á nokkurn hátt. Þú mátt heldur ekki nota þjónustuna til þess að hvetja til ólögmætrar starfsemi eða lögbrots.

Skráning

Skráning á Selt.is er aðeins fyrir þá sem geta gert lögmætan, bindandi samning. Selt.is er einungis fyrir 16 ára og eldri. Ef þú skráir þig með fölskum fæðingardag mun við loka og eyða notendareikningi þínum án tafar.

Skilmálar

Á selt.is mátt þú ekki:

  • Gerast brotleg/ur við landslög á nokkurn hátt.
  • Stunda viðskipti sem þér er ekki heimilt sökum aldurs eða umboðsleysis.
  • Hætta við viðskiptin eftir að sala hefur átt sér stað, hvort sem þú ert seljandi eða kaupandi.*
  • Afhenda ekki vöru eða greiðslu eftir að viðskiptum líkur.
  • Sniðganga eða snuða selt.is um sín umboðslaun.
  • Gefa upp rangar upplýsingar á síðunni, hvort sem er rangar upplýsingar um vöru, verð eða persónulegar upplýsingar.
  • Dreifa ruslpósti, drasli og bulli á sendingarkerfi selt.is.

*Notendur sem bjóða í vörur með það í huga að framfylgja ekki kaupum, eða hætta við kaup eftir að uppboði líkur, eiga það á hættu að þurfa sjálfir að greiða fyrir uppboðsgjöld seljanda.

Við hjá selt.is kappkostum við að bjóða upp á örugg netviðskipti og hvetjum þig að tilkynna okkur hvers konar brot sem þú kannt að lenda í.

Vakni grunur um að einhver sé að misnota aðgang sinn eða annarra þá áskiljum við okkur rétt til að loka aðganginum umsvifalaust og taka alla hluti sem tilheyra viðkomandi úr sölu.
Selt .is tekur á engan hátt ábyrgð á tekjumissi eða öðrum skaða sem viðkomandi telur sig hljóta af viðskiptum á síðunni, hvort sem það er vegna bilunar á sölukerfi eða hvers konar annarri truflun sem verður til þess að viðskipti geta ekki átt sér stað.

Verði tilkynnt að einhver sé að höndla með þýfi á selt.is verður aðgangi viðkomandi lokað, allir munir á hans vegum teknir af skrá og málið sent lögreglu. Þar með líkur þátttöku selt.is í því máli.

Gerist einhver brotlegur við reglur selt.is eða landslög þá áskiljum við okkur rétt að loka aðgengi viðkomandi fyrirvaralaust og sé brots þess eðlis verður það tilkynnt lögreglu. Við áskiljum okkur einnig rétt á að loka aðgengi sem hefur verið ónotaður lengi.

Við seljum ekki né leigjum persónulegar upplýsingar til annarra aðila án leyfis. Við áskiljum okkur hins vegar rétt til að kynna þjónustu selt.is eða aðra þjónustu sem aðstandendur selt.is standa að.

Öll ágreiningsmál sem kunna að koma upp verða rekin fyrir Héraðsdómi Reykjarvíkur.