Til að setja vöru á uppboð smellirðu á "Selja" hnappinn í efstu valröndinni. Að setja vöru á uppboð er skipt í 8 skref.
- Aðalflokkur (hér er hægt að velja þann flokk sem passar best við tegun vöru eða þjónustu)
- Aukaflokkur (Hér er hægt að velja aukaflokk gegn vægu gjaldi)
- Upplýsingar um hlutinn, (s.s. titill og lýsing á uppboðinu)
- Stillingar fyrir uppboð (s.s. verð, tími uppboðs o.fl.)
- Myndir & margmiðlunarefni (Hér er hægt að setja inn myndir og vídeó)
- Sending og greiðsla (hvernig þú vilt fá greiðslu og hvernig þú vilt afhenda vöruna)
- Sýnishorn (Sýnishorn og staðfesting uppboðs. Þú getur annaðhvort geymt uppboðið sem skissu, eða sent það inn á síðuna)
- Klára (staðfesting á að uppboðið sé sent inn, og upphæð gjalds)
Öll
skrefin eru vel útskýrð á meðan farið er í gegnum þau, ágætt er
að hafa í huga að hægt er að fara fram og aftur á milli skrefanna með
því að ýta á "Næsta skref" eða "Til baka" takkana.
Fyrsti hluti
skráningar er að velja flokk fyrir vöruna. Hægt er að velja mest tvo
flokka fyrir hvert uppboð, en athugaðu að lítið aukagjald er oftast
tekið ef vara er sett í fleiri en einn flokk.
Á upplýsingasíðunni er fullkominn html ritill, þannig að auðvelt er að stilla upp upplýsingum um vöruna eins og óskað er.
Ef þú hefur afsláttarkóða er hægt að slá hann inn neðst á upplýsingasíðunni.
Þriðja skrefið er stærsta skrefið. Í þessu skrefi þarftu að setja inn
- Hvernig uppboð er þetta:
Almennt uppboð þar sem einn ákveðinn hlutur er boðinn upp, eða
magnuppboð það sem hægt er að selja fleiri en einn af einhverjum hlut,
t.d. ef þú þarf að selja 100 penna, þá getur fólk boðið í ákveðið magn
af pennunum, t.d. 50 stk.
- Gjaldmiðill:
Sjálfgefið er Íslensk króna og er hún eini leyfilegi gjaldmiðillinn á selt.is
- Fjöldi:
Þetta birtist einungis ef um Magnuppboð er að ræða
- Byrjunarverð:
Hér er ákveðið hvert fyrsta boð í vöruna skal vera.
- Varaverð:
Með því að virkja varaverð verður varan ekki seld nema því verði sé náð.
- Virkja "Kaupa nú":
Með þessu geturðu ákveðið verð sem hægt er að kaupa vöruna á beint og
enda þar með uppboðið. Einnig er hægt að setja inn boð sem er einungis
"Kaupa nú" boð. Með þessu er allt uppboðsferlið tekið út og einungis
hægt að kaupa vöruna beint.
- Tilboðsverð:
Með þessu er hægt að leyfa notendum að senda inn tilboð í vöruna. Með
þessu senda áhugaverðir kaupendur þér tilboð sem þú getur annað hvort
samþykkt eða hafnað í gegnum "Mitt svæði".
- Hækkanir:
Með þessu geturðu stjórnað hversu mikið boð hækka.
- Kaupa athygli:
Hér geturðu aukið athyglina sem varan þín fær gegn gildandi verðskrá. Þessir möguleikar eru fyrir hendi:
- Gjald fyrir aukaflokk
- Athyglisvert á forsíðu
- Athyglisvert í flokki
- Uppljómað
- Feitt letur
- Sett inn/Gildir til:
Hér er hægt að ákveða hvort tilboðið fari inn strax eða eftir ákveðinn tíma, sem og ákveða verður hvenær boðið skal enda.
- Einkauppboð:
Ef merkt er við einkauppboð þá sést ekki hverjir eru búnir að bjóða í vöruna.
- Sjálfkrafa endurlistun:
Hér er hægt að setja uppboðið inn aftur, bæði ef hluturinn selst og
einnig ef hluturinn selst ekki, sem og hversu oft. Þetta getur verið
hentugt ef selja á marga hluti af sömu tegund.
Athugið: Auka-gjöld eru rukkuð við endurlistun, en 50% afsláttur er gefinn.
Í næsta skrefi getur þú sett inn allt að 4 myndir og 1 video.
Í næsta skrefi getur þú valið greiðslu- og sendingarmöguleika.
Í
skrefinu eftir það er hægt að skoða uppboðið áður en það er sent inn
til samþykktar. Að lokum er birt stafesting þess að uppboðið sé tilbúið.
Athugaðu að alltaf er hægt að breyta uppboðinu með því að fara í "Mitt svæði"