ÞJÓÐSÖGUR ÚR ÍSAFJARÐARBÆ
Hljóðbók Lesari: Elfar Logi Hannesson Lengd: 92 mín.
Ísafjarðarbær er stórt og mikið sagnasvæði sem nær allt frá Dýrafirði til Hornstranda. Á þessari hljóðbók les Elfar Logi Hannesson, leikari, úrval magnaðra þjóðsagna úr Ísafjarðarbæ. Sögurnar eru alls 33 og er skipt niður í fimm þjóðsagnaflokka: Álfa- og huldufólkssögur, Draugasögur, Galdrasögur, Skrímslasögur og Tröllasögur.
Þjóðsögur úr Ísafjarðarbæ er vönduð útgáfa sem inniheldur einstakan sagnaarf í vönduðum flutningi. |