Froskurinn sem vildi fljúga.
Geysi vinsælt barnaleikrit á CD.
Fallegt barnaleikrit sem vakti mikla athygli fyrir nokkrum árum þegar það var flutt í útvarpi. Aðalleikarar eru Árni Tryggvason og Bessi Bjarnason.
Mörg börn horfa mikið á sjónvarp og leika sér í tölvum. Að hlusta á gott leikrit virkjar góða hlustun og um leið fer ímyndunaraflið af stað.
Ljúf saga um lítinn frosk sem vildi læra að fljúga af þvi hann var leiður á að vera froskur.
Góður boðskapur, vertu þú sjálfur en ekki reyna að vera einhver annar.
|