Munið þið eftir kössunum sem innihalda kvikmyndafilmur, sem gaman
væri að sýna börnunum eða öðrum í fjölskyldunni? En vegna þess hve
erfitt er að koma því í kring hefur það setið á hakanum. Þess í stað
hafa þær safnað ryki í geymslunni. Í stað þess að láta minningarnar
dofna og hverfa, er hægt að bjarga þeim frá glötun með því að yfirfæra
þær á DVD. Við erum með fullkomnann búnað til að færa filmurnar yfir á stafrænt form í fullkomnum gæðum á mjög hagstæðu verði.
Af hverju nú?
-
Filmur eyðast með tímanum.
-
Það er mikið mál að setja upp sýningarvél til þess að geta horft á
filmurnar.
-
Erfitt er að fá varahluti í sýningarvélar.
Hvað felst í yfirfærslunni?
- Filmurnar eru hreinsaðar með filmuvökva áður en þær eru
yfirfærðar.
-
Ekkert flökt í mynd.
-
“Leaders” klipptir í burtu. Ef mynd hoppar eru þeir rammar klipptir í
burtu.
-
Myndir lýstar ef þær eru of dökkar.
-
Aðalvalmynd með lifandi myndbútum.
-
Falleg aðalvalmynd og kaflavalmyndir ef um fleiri en eina filmu er að
ræða.
- DVD diskur
Kostir yfirfærslunnar
- Auðvelt að finna efni á diskinum, því fyrsti rammi hverrar spólu
kemur fram á kaflavalmynd.
- Ólíkt við filmur, fölnar myndefnið ekki með tímanum, eftir að það
er komið á disk.
Því lengur sem maður bíður með að færa filmurnar yfir á DVD, því
lakara
verður myndefnið. Því er um að gera að safna saman öllum þessum
gersemum og láta yfirfæra þær hjá okkur sem fyrst. Þjónustan Þetta verð er fyrir eina 50 feta filmu yfir á DVD. |