Aloe Vera er þykkblöðungur. Í blöðum plöntunnar er að því er virðist græðandi gel sem notað hefur verið í húðsnyrtivörur og til að draga úr bólgum í húð eins og við sólbruna. Formóðir þeirrar plöntu sem ég er að rækta var notuð sem fyrirbyggjandi og græðandi meðferð við legusárum. Ég hef síðan notað safa úr blöðum plöntunnar til að draga úr sviða við minni háttar bruna hjá börnunum. Seinni árin komst ég að því að ég get dregið úr baugum og bólgnum augum með eftirfarandi sem ég endurtók á hverjum morgni í viku: Blað plöntunnar klofið, sárahliðin lögð yfir augun og volgur þvottapoki yfir. Látið virka í 30-60 mínútur, gott að liggja með hátt undir höfðinu á meðan. Einnig er gott að kreista safa úr blöðunum og bera á augnlokin og umhverfis augun á kvöldin.
Með alúð má rækta nægilegt magn af plöntum til heimilisnota. Ef þú byrjar með eina plöntu getur þú átt nokkrar í réttri stærð eftir 3 mánuði og átt þá alltaf lauf að grípa í þegar þörf krefur.